Á hverjum þriðjudegi skólaársins hittist föngulegur hópur ungra drengja í Réttarholtsskóla til að spila "fallega leikinn". Dregið er í lið og stig gefin fyrir árangur; 2 stig fyrir sigur, 1 stig fyrir jafntefli og 0 stig fyrir tap.

þriðjudagur, febrúar 28, 2006

9. umferð: Til hamingju Dagbjartur!

28. febrúar 0:0
A: Jón, Dabbi, Gunni, Gummi
B: Jói, Jörgen, Matti, Guðni

Hörkuleikur í kvöld sem einkenndist af hjartsláttartruflunum, leikaraskap (Koeman) og grófu broti á undirrituðum á lokasekúndum leiksins!

Ég vil annars vekja athygli á smá misskilningi en fyrst núna er mótið rúmlega hálfnað. Það eru nefnilega 17 umferðir eftir áramót; þetta var sú níunda og því eru átta umferðir eftir. Meiri bolti- meiri gleði!


11 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Nú hefur stormcenterinn farið óvarlega í saltkjötið... Það er nú sjaldan sem hann kvartar undan því að karlmenn komi nálægt honum hvað þá að þeir nuddi sér upp við hann eins og gerðist í kvöld, þetta var bara smá nudd og ekkert annað.

28/2/06 22:35

 
Anonymous Nafnlaus said...

ég tel mig hafa verið í bestu aðstöðunni til að sjá þessi tvö atvik sem um er talað.Hvað að Guðna varðar klárt brot.Seinna tilvikið lélegur leikaraskapur og vel bjargað að fá ekki mark í bakið vel gert Gummi

kveðja gunnar

1/3/06 10:34

 
Anonymous Nafnlaus said...

Heyr, heyr, alltaf gaman að heyra í heiðarlegum mönnum.

1/3/06 10:38

 
Blogger Tækklarinn said...

Nú grunar Gvend að tvíburinn sé að fara mannavillt á sjálfum sér...

2/3/06 13:43

 
Anonymous Nafnlaus said...

hvernig er með Fúsa er legið farið að vaxa aftur ég hélt að það sem væri tekið í heilu lagi gæti ekki farið að síga á nýjan leik ?

6/3/06 14:13

 
Anonymous Nafnlaus said...

Ég held svei mér þá að hann hafi verið tvílega

6/3/06 17:41

 
Anonymous Nafnlaus said...

Ég held að við fáum ekki að sjá siglfirðingin aftur fyrr en göngin eru komin,hann er eitthvað að ruglast í landafræðinni

7/3/06 11:22

 
Anonymous Nafnlaus said...

Tækklarinn vill minna vefstjóra á gríðarlega ábyrgh hans í uppfærslu töflunnar eftir hverja umferð,þrátt fyrir stöðu hans í mótinu.

9/3/06 11:32

 
Anonymous Nafnlaus said...

Það þýðir ekki að draga okkur hina niður í þitt eigið þunglyndi og mótið rétt hálfnað.Ég hef reiknað það út að þú endar í 8 stigum og -47 mörkum sem er ágætt svo þú hefur einhverja ástæðu til að mæta í tímana.Stefni á sigur í mótinu og vonast til að lenda ekki með þér í liði.

10/3/06 12:21

 
Blogger Tækklarinn said...

2 stig dregin af Gunnari!!!

10/3/06 14:24

 
Anonymous Nafnlaus said...

Er ekki hægt að draga einhver stig af Jóni líka? Ég er viss um að hann var allavega að hugsa eitthvað líkt og Gunni.

13/3/06 19:43

 

Skrifa ummæli

<< Home